13mars
Allir að kjósa Grétu Maríu Úngfrú Vestfirðir
http://www.netheimar.com/kosning/
30janúar
ég er flutt inn með honum kjartani mínu og innfluttningspartýið var á föstudaginn og allir skemmtu sér konunglega með mohító í annari. en svo er soldið síðan ég kom frá kúbú og það var sko lífsreynsla í lagi. kúba er land andstæðna og vitleisa það er sko hægt að segja með réttu. við tókum e-h um 600 myndir en mjög fáir eru búnir að sjá þær... veit ekki afhverju?? en þær eru margar mjög flottar og ég væri alveg til í að fara aftur til kúbu og bara slaka á
skólinn er búinn að vera alger plága uppá síðkastið, ég er hreynlega ekki búinn að hafa undan að vinna verkefni og mörg sem eru óunnin...þar get ég tekið dæmi um verkefni í sögu sem felst í því að skrifa áfengissögu mína!!! hvernig er hægt að gera það... ég hreynlega man ekki svona langt aftur

já og þeir sem ekki hafa fattað þá átti ég afmæli á sunnudaginn 28 janúar og það var frekar asnalegt að hugsa til þess að vera orðinn 20 ára!!! hvað tekur núna við... er maður að yfirgefa ungdóminn og verða fullorðinn í fyrsta skipti. annað sem fylgir því að vera 20 ára er að nú verð ég eina manneskjan í vinahópnum sem getur farið í ríkið... ÁTVR

þetta sama gerðist þegar ég varð 17 ára þá var ég eina með viti sem var með bílpróf og ég var látin keyra og keyra og allt sem filgdi því!
að lokum er ég hér með myndir frá kúbu...


05janúar
þetta er búið að vera allt svo skrýtið
ég er búinn að pakka niður og allt en samt er ég ekkert að fatta að ég sé að fara út... valla orðin spent einu sinni. Ég flýg út kl: 06:00 á sunnudagsmorguninn og millilendi í Halifax og svo til Kúbu og þetta verður 12 tíma flug í einhverri rellu sem ég er næstum viss um að verði óþægileg
en allavegana svo kem ég heym 14 janúar sem er ekki nógu gott því ég hefði viljað vera í 2 vikur en ég þarf víst að fara í skólann
Þetta verður samt öruglega voða gaman og ég á öruglega eftir að vilja fara aftur þangað senna
07nóvember
Hafið þið spáð í því hvað við erum heppin að búa á þessum stað á þessum tíma?
Ég meina við búum á hápunkti iðnvæðingarinnar þar sem allt er hægt, en spurningin er bara hversu lengi það endist. Það eru jú ýmis náttúruspjöll í gangi og sennilega eftir einhvern X tíma verður ekki hægt að búa hér á íslandi og eða heiminum. Ég tel hinsvegar að núna sé tíminn og að Ísland sé staðurinn. Þó að það sé pínu kalt hjá okkur þá er þetta efnað land og allir geta lifað góðu lífi, svo er líka bara alltaf hægt að skreppa til útlanda þegar hentar.
Það versta sem ég veit um er þegar fólk er ósátt með lífið og kanski þunglynt vegna þess, þessir einstaklingar sjá ekki alla þá kosti sem við höfum umfram aðra í heiminum og kunna ekki að meta það að vera Íslendingur.
Samfélagið okkar hefur aldrei verið betra, en hversu lengi getur það haldið áfram að batna? Sennilega mun heimurinn fara versnandi en þá er um að gera að njóta þess að vera til og ekki gleyma því að við erum framtíðin sem forfeður okkar gáfu okkur í arf og það er okkar hlutverk að sjá fyrir komandi kynslóðum.

endilega kommenta þetta
05október
Kæra fólk
ég hef ákveðið að fara til kúbu eftir áramót... ég og kjartan erum semsagt að fara og verðum í viku.
þetta er lítil paradísareyja með flottum ströndum en gamalli menningu, því landið er í innflutningsbanni og allt er gamalt þar...
bílar frá 1950

einræðisherran Castro er alveg að hrökkva uppaf og þá losnar sennilega um innflutningsbannið... en það verður frábært að sjá kúbu svona rétt fyrir það
flottar strendur!
og eins og þið sjáið þá hlakkar mér ekker smá til að sleikja sólina og synda í himinbláum sjó.
en til að komast þangað þarf ég að taka 9 tíma flug og millilendi í Halifax? held að það sé í kanada.
takk takk:D
30september

þessi sköthjú verða á Brodway 30 september og getiði hvað... ég er að fara;D
og það sama kvöld er matarboð Álverssins og allt að gerast... við stepplurnar erum allar að fara því við erum bara nettar:)
19september
Jæja jæja ég var að setja nokkrar vel valdar myndir af sumarinu 2006 hér inn
en það er annars allt gott að frétta hjá mér... rosa ball síðustu helgi og allir fullir, næsta helgi er sennilega party hjá Rúnu því hún er að flytja í bæinn og er að fara bæði í skóla og vinna í ullarbúð...
svo við verðum að kveðja okkar vinkonu !

ég og Gréta, hún skellti sér í brúnku hehehe...:D
11september
þetta var nú meiri helginn. ég var að vinna að homma Draugasetrinu og laugardagskvöldið gat ég ekkert djammað að ráði því stepplurnar voru bara út umm allt. gréta og erla á Klaustri, Helga að leggja parket með mömmu sinni

og unnur heima í lundareykjadal
en næstu helgi verður sko gaman fullt af böllum og ég ætla sko að djamma af mér rassinn... en þið
04september
Þetta var nú nokkuð góð helgi svo ég byrji nú þetta nýja blogg á að segja frá djamminu. En sjaldan hefur nokkur djammhegi verið í eins mikklum andstæðum, því á föstudaginn var ég að vinna sem GÆSLA á busaballi en hinsvegar var ég á laugardaginn BLINDFULL á troðfullu pakkhúsi...
Annað sem gleður er að ég var að finna fullt af flottum myndum úr Úngfrú Ísland keppninni. En þannig er það bara að hvað sem öllum fordómum líður þá var þessi keppni það skemmtilegasta sem ég hef gert! Mér óraði ekki fyrir þessu, því auðvitað var ég jafn gagnrýnin á svona keppnir eins og margir aðrir. Ég græddi fullt af nýjum vinum og heilan haug af reynslu. 